Á Viðskiptatorg kemur fólk ýmist til að fá þjónustu er varðar sölu á einhverju, eða fá upplýsingar og ráðgjöf um hvað eina er snýr að stofnun og rekstri fyrirtækja, enn aðrir vilja fá eign sýna metna. Á torgið mætir líka fólk sem vantar rekstur eða húsnæði. Þannig mætist á Viðskiptatorgi fólk með ólíkar þarfir. Við lofum því að taka vel á móti þér og veita þér þá þjónustu sem þú óskar eftir.

Aðalstarfsemi okkar er fyrirtækjasala, miðlun fyrirtækja og rekstrareininga fyrirtækja, jafnframt sala og útleiga á atvinnuhúsnæði, (atvinnutengdum eignum) þriðji stóri þátturinn í starfsemi okkar er svo verðmöt á fasteignum,  fyrirtækjum og rekstri. 
Ráðgjöf á sömu sviðum er ennfremur stór þáttur í starfseminni.

Rekstur okkar byggir á þekkingu – reynslu og árangri.
Gunnar Jón Yngvason stofnaði fyrirtækjasölu  í ágúst 1994 og er hann því með allra reyndustu mönnum á þessu sviði. Auk þess er hann með meistaragráðu í Viðskipta og rekstrarfræðum, jafnframt því að vera löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali ásamt fleiru.  Frá upphafi var lögð áhersla á að sérhæfa sig í miðlun á rekstri og rekstrartengdum húsnæðum hvort heldur það væri til sölu eða leigu. Sú þekking og reynsla sem hefur safnast upp á langri leið stendur þér til boða að nýta.

Við fögnum því að fá tækifæri til að miðla af reynslu og þekkingu sem felst í því að veita þér framúrskarandi þjónustu.

Meðal viðskiptavina okkar í gegnum tíðina má nefna einstaklinga, stór fyrirtæki, opinber fyrirtæki, fjármálastofnanir, fasteignafélög, leigufélög, byggingarfélög,  stofnanir, ríkið og sveitarfélög.

 

(http://www NULL.leiguhus NULL.is)
(http://www NULL.batarogbunadur NULL.is)